Öll með: Fyrirhugaðar breytingar á örorkulífeyriskerfinu
Fram undan eru breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem fela í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi.
Markmiðið er að bæta afkomu þeirra sem fá greiddan örorkulífeyri, einfalda kerfið, draga úr tekjutengingum, auka hvata til atvinnuþátttöku og gera örorkulífeyriskerfið gagnsærra og réttlátara.
Þá er stuðningur aukinn við fólk meðan á endurhæfingu þess stendur, samvinnu þjónustukerfa komið á og áhersla lögð á að hindra að fólk falli á milli kerfa.
Af hverju breytingar?
Hvaða breytingar eru fyrirhugaðar og hvað felst í þeim? Svör við því og fleiru til má lesa um í samantekt um breytingarnar.
Kynningarfundur
Fyrirhugaðar breytingar voru kynntar í beinni útsendingu úr Þjóðmenningarhúsinu. Þú getur horft á upptökuna hér á vefnum.
Reiknivél
Í reiknivél á vefnum er hægt að bera saman hvað fólk fær í örorkulífeyri í núverandi greiðslukerfi og hvað það myndi fá í nýju greiðslukerfi.
Fréttir
- Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðReiknivél vegna fyrirhugaðra breytinga á örorkulífeyriskerfinu22.04.2024
- Félags- og vinnumarkaðsráðuneytiðBein útsending vegna fyrirhugaðra breytinga á örorkulífeyriskerfinu: Öll með22.04.2024
Grípum fólk snemma
Í nýja kerfinu er aukin áhersla lögð á samfellda þjónustu í tengslum við starfsendurhæfingu hjá fólki sem verður fyrir alvarlegum eða langvarandi heilsubresti. Markmiðið er að grípa fólk snemma og draga úr líkum á því að fólk hætti þátttöku á vinnumarkaði og fari á ótímabæra örorku með tilheyrandi tekjutapi til framtíðar fyrir viðkomandi.
Eftir breytingarnar verður fólki með mismikla getu til atvinnuþátttöku gert kleift að reyna fyrir sér á vinnumarkaði og bæta þar með afkomu sína kjósi það svo. Á sama tíma er markmiðið að halda sérstaklega utan um þau sem minnst hafa og eru með litlar líkur á atvinnuþátttöku.
Hjá Miðstöð um auðlesið mál getur þú séð frétt á auðlesnu máli um frumvarpsdrögin frá því að þau voru birt í samráðsgátt stjórnvalda
Öll með
Grunnhugsunin er sú að við séum öll með og skiptum öll máli. Leiðarljósið er skýrt: Að stuðla að bættum kjörum, aukinni virkni og meira öryggi og vellíðan fólks.
Verkefnið er að tryggja fólki tækifæri – að tryggja að við fáum öll að vera með.
Frumvarpið sjálft
Viltu lesa frumvarpið sjálft? Frumvarpið er komið til Alþingis og hefur verið birt á vef þingsins.
Yfirlýsing um samstarf þjónustukerfa
Heildstæð nálgun, samvinna kerfa og samfella í þjónustu verða leiðarstefin í endurhæfingu fólks samkvæmt viljayfirlýsingu sem hefur verið undirrituð.
Frétt um breytingarnar
„Leiðarljósið er stuðla að bættum kjörum, meira öryggi og vellíðan fólks,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Almannatryggingar
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.