Með lögum sem sett hafa verið á sviði vinnuréttar er kveðið á um grundvallarreglur sem varða réttindi og skyldur launafólks og atvinnurekenda. Lögin kveða yfirleitt á um lágmarksréttindi. Óheimilt er að gera samninga um lakari réttindi en kveðið er á um í lögunum og teljast slíkir samningar ógildir.
Almenn vinnulöggjöf heyrir undir félagsmálaráðuneytið, sem fer með yfirstjórn þessa málaflokks en Vinnueftirlit ríkisins og Vinnumálastofnun, fara með framkvæmd einstakra málaflokka. Sérstök löggjöf varðandi opinbera starfsmenn fellur undir fjármálaráðuneytið. Hafa ber í huga að ýmiss konar sérreglur gilda um afmarkaða hópa á vinnumarkaði, svo sem sjómenn og bankamenn. Jafnframt er kveðið á um réttindi launafólks í kjarasamningum aðila vinnumarkaðsins.