Sveinsprófsnefnd í rafiðngreinum - veikstraumi 2023-2027
Sveinsprófsnefnd í rafiðngreinum - veikstraumi er skipuð samkvæmt 30.gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og reglugerð nr. 598/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.
Nefndin er svo skipuð:
Aðalmenn:
- Jökull Jóhannsson, án tilnefningar
- Guðrún Ýrr Tómasdóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs rafiðngreina
- Ásvaldur Kristjánsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs rafiðngreina
Varamenn:
- Gabríel Snær Jóhannesson, án tilnefningar
- Anna Kristjana Helgadóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs rafiðngreina
- Heimir Snær Gylfason, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs rafiðngreina
Skipunartími nefndarinnar er frá 25. nóvember 2023 til 24. nóvember 2027.